Það er að verða þreytt að þurfa að hamra á þessu aftur og aftur. Það sem Kjartan Magnússon er að fara fram á er rangt. Það er mjög ábyrgðarlaust að gefa út eða birta PISA niðurstöður einstakra skóla. Vegna aðferðafræðinnar sem er notuð eru PISA niðurstöður tæknilega séð marklausar þegar þær eru greindar niður á einstaka skóla. Að gefa út eða nota á nokkurn hátt PISA niðurstöður einstakra skóla er ábyrgðarlaus misnotkun á gögnunum.
Ég hef útskýrt þetta áður hér: Er þetta sniðugt? Um PISA niðurstöður einstakra skóla. Það sem ég segi í þessari grein er eiginlega nákvæmlega það sama og Gylfi Jón Gylfason, sviðsstjóri á mats- og greiningarsviðs Menntamálastofnunar, sagði í viðtali í Kastljósi fyrir skömmu.
Síðdegisviðbót: Þetta er ánægjulegt að sjá: http://www.mbl.is/frettir/innlent/2017/03/08/pisa_hentar_ekki_til_ad_meta_stodu_skola/
Neita skólum um niðurstöður PISA | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Menntun og skóli | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:17 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.